Norðurland keppti á Bikarkeppni FRÍ um síðustu helgi og var hart barist fram á síðustu grein. Norðuland er sameinað lið UMSE-UFA-UMSS og HSÞ. Norðurland keppti í efstu deild og náði eftirfarandi árangri Karlarnir urðu í 4 sæti með 65 stig en Ármann/Fjölnir urðu í 3. með 66 stig Konurnar urðu í 5. sæti með 50 stig Í heildarstigakeppninni varð Norðurland í 4. sæti með 115 stig en úrslitin urðu eftirfarandi ÍR 173,0 FH 157,0 Ármann/Fjölnir 135,0 Norðurland 115,0 HSK 97,5 Breiðablik 94,5 ![]() Af einstaklingsafrekum má nefna að Evrópumeistaramótsfarinn frá HSÞ Þorsteinn Ingvarsson sigraði í 100m hlaupi, 200m hlaupi og langstökki. Þorsteinn varð annar í þrístökki og 110m grind Bjartmar Örnuson sigraði nokkuð óvænt í 800m hlaupinu Hafdís Sigurðardóttir sigraði í langstökki og varð 2. í 100m og 200m Hin 15 ára gamla Stefanía Andersen Aradóttir frá Dalvík setti nýtt og glæsilegt Íslandsmet í meyjaflokki í sleggjukasti með kvennasleggjunni ( 4kg ) og bætti hún það um 1,39 m og kastaði 39,16m. |
Fréttir >