Af vef Ungmennafélags Íslands www.umfi.is Allt að 200 manns mega horfa á íþróttaviðburði að uppfylltum ákveðnum skilyrðum, skíðasvæði og sundstaðir mega taka á móti 75% af leyfilegum hámarksfjölda og allt að 150 nemendur verða heimilaðir í hverju rými á öllum skólastigum. Fjöldatakmarkanir fara úr 20 manns í 50, samkvæmt nýjum tilslökunum á sóttvarnaaðgerðum sem Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra kynnti í morgun. Breytingarnar taka gildi á morgun, miðvikudaginn 24. febrúar. Þá segir í reglugerð að sú breyting hefur nú átt sér stað að fyrirkomulag íþróttakennslu barna og ungmenna fellur nú undir almenna reglugerð um takmörkun á samkomum vegna farsóttar. Ný reglugerð heilbrigðisráðherra veitir umtalsvert svigrúm til íþróttaiðkunar og gilda sömu reglur um íþróttastarf innan skóla og utan frá og með morgundeginum, 24. febrúar. Breytingar á samkomutakmörkunum í hnotskurn:
Almennar fjöldatakmarkanir verða 50 manns samkvæmt nýjum reglum um samkomutakmarkanir sem taka gildi 24. febrúar. Reglur um grímunotkun verða óbreyttar og áfram verður 2 metra nándarregla meginviðmið en þó með ákveðnum undantekningum eins og að neðan greinir. Nánar í frétt á vef stjórnarráðsins: |
Fréttir >