Þorvaldsdalsskokkið, elsta skipulagða óbyggðahlaup á Íslandi, verður haldið í 33. sinn þann 4. júlí. 2026
Þorvaldsdalsskokkið - Landvættur
Aðalhlaupið hefst við gömlu brúna yfir Ytri-Tunguá milli Dagverðartungu og Fornhaga í Hörgárdal og lýkur við Stærri-Árskóg á Árskógsströnd.
Vegalend er tæpir 25 km
Leiðarval frá rásmarki að marki er keppendum frjáls
Þátttökugjald verður tilkynnt 1. janúar.-
Innifalið í gjaldi er gjöf merkt hlaupinu.
Rúta fer frá Árskógi að rásmarki. Gjald fyrir rútuna er 1.000.-
Rástími úr Hörgárdal er 12:00 og rúta fer frá Árskógsskóla kl. 11:00 (mæting 10:30).
Hálfur Þorvaldsdalur - Hálfvættur
Hlaupið hefst fyrir ofan Brattavelli á Árskógsströnd og lýkur við Stærri-Árskóg á Árskógsströnd.
Vegalengd er um 16 km
Þátttökugjald verður tilkynnt 1. janúar.-
Innifalið í gjaldi er gjöf merkt hlaupinu.
Rúta fer frá Árskógi að rásmarki og er rúta innifalin í þátttökugjaldi. ATH. óheimilt verður að aka upp að rásmarki og því er gert ráð fyrir að allir keppendur fari með rútu.
Rástími er 13:00 og rúta fer frá Árskógsskóla 12:45 (mæting 12:15).
Forskráning fer fram á netskraning.is og opnar í byrjun mars 2026 en einnig er hægt að hafa samband við skipuleggjendur á thorvaldsdalsskokk@umse.is varðandi greiðslu þátttökugjalda.
Nánari upplýsingar um Þorvaldsdalsskokkið er að finna á vefsíðu hlaupsins: http://thorvaldsdalur.umse.is/
Upplýsingar eru birtar með fyrirvara um breytingar.
Fréttir af 105. ársþingi UMSE
105. ársþing Ungmennasambands Eyjafjarðar (UMSE) var haldið í Þelamerkurskóla fimmtudaginn 9.apríl. Á þinginu áttu sæti fulltrúar frá stjórn og öllum aðildarfélögum UMSE.
Á þinginu var tilkynnt um íþróttafólk UMSE árið 2025 en valið byggði á útnefningum aðildarfélaga. Íþróttafólk UMSE 2025 er:
Aníta Ingvarsdóttir (umf.Svarfdæla)
Bil Guðröðardóttir (Hestamannafélagið Hringur)
Elín Björk Unnarsdóttir (sundfélagið Rán)
Maron Björgvinsson (Golfklúbburinn Hamar)
Torfi Jóhann Sveinsson (skíðafélag Dalvíkur)
Ægir Eyfjörð Gunnþórsson (umf. Svarfdæla)
Katrín Björk Andradóttir (umf. Samherjar).
Bræðurnir Gestur og Ásgeir Már Haukssynir voru sæmdir gullmerki UMSE.
Fyrrverandi formaður UMSE, Árni Arnsteinsson, gegndi hlutverki þingforseta. Nokkrar tillögur lágu fyrir og vöktu þær upp góðar umræður, voru flestar tillögurnar samþykktar.
Meðal samþykktra tillagna var hvatning UMSE til aðildarfélaga um að verða Fyrirmyndarfélög, líkt og UMSE.
Fram undan eru fjölbreytt verkefni, má þar nefna Landsmót 50+, sem verður haldið á Eyjafjarðarsvæðinu í sumar.
Kosið var í stjórn og helst hún svo til óbreytt, Lilja Guðnadóttir kemur ný inn í varastjórn.
Ásgeir og Gestur Haukssynir
Í stjórn UMSE sitja:
Þorgerður Guðmundsdóttir, formaður
Snæþór Arnþórsson, varaformaður
Einar Hafliðason, gjaldkeri
Jónína Heiðveig Gunnlaugsdóttir, ritari
Kristín Torberg, meðstjórnandi
Varamenn stjórnar eru:
Marinó Þorsteinsson
Bjarney Anna Sigfúsdóttir
Lilja Guðnadóttir
Úthlutað úr Afreksmannasjóði UMSE
Í gær var úthlutað úr afreksmannasjóði UMSE. Tilgangur sjóðsins er að styrkja einstaklinga eða hópa, innan UMSE, sem náð hafa framúrskarandi árangri í íþrótt sinni. Það er stjórn UMSE sem sér um úthlutun úr sjóðnum.
Eingöngu félagar og keppnishópar innan UMSE, sem stunda íþróttir iðkaðar innan UMSE og viðurkenndar eru af Íþrótta- og Ólympíusamband (ÍSÍ), geta sótt um styrk úr sjóðnum og hlotið úthlutun.
Sjóðurinn stendur fjárhagsleg vel, en tekjur hans eru samkvæmt reglugerð 10% af tekjum UMSE frá Lottó.
Að þessu sinni var úthlutað um 610.000.- úr sjóðnum til 4 einstaklinga og eins liðs. Allir styrkþegar hafa það sameiginlegt að skara fram úr með einhverjum hætti í íþrótt sinni og leggja mikið á sig til þess að ná árangri.
Eftir farandi hlutu styrk að þessum sinni:
Barri Björgvinsson Golf og skíði Golfklúbburinn Hamar og Skíðafélag Dalvíkur
Eiríkur Hrafn Baldvinsson Blak Blakfélagið Rimar
Óskar Valdimar Sveinsson Skíði Skíðafélag Dalvíkur
Körfuknattleiksdeild Umf.Samherjar Körfuknattleikur Ungmennafélagið Samherjar
Torfi Jóhann Sveinsson Skíði Skíðafélag Dalvíkur
UMSE óskar þessum einstaklingum til hamingju með úthlutunina og velfarnaðar á komandi ári.