Reglugerð Afreksmannasjóðs UMSE
1. grein
Sjóðurinn heitir Afreksmannasjóður UMSE og skal varnarþing hans vera starfssvæði UMSE.
2. grein
Tilgangur sjóðsins er að styrkja einstaklinga eða hópa, innan UMSE, sem náð hafa framúrskarandi árangri í íþrótt sinni.
3. grein
Eingöngu félagar og keppnishópar innan UMSE, sem stunda íþróttir iðkaðar innan UMSE og viðurkenndar eru af Íþrótta- og Ólympíusamband (ÍSÍ), geta sótt um styrk úr sjóðnum.
4. grein
Stjórn sjóðsins er stjórn UMSE og sér hún um úthlutun úr honum hverju sinni.
5. grein
Tekjur sjóðsins verði:
a) Ákveðið hlutfall af óskiptum lottótekjum er renna til UMSE, skv. Reglugerð um skiptingu á lottótekjum sambandsins.
b) Frjáls framlög og söfnunarfé.
c) Tekjur af eignum sjóðsins.
6. grein
Heimilt er að veita úr sjóðnum á hverjum tíma öllu því fé sem í honum er. Sjóðsstjórn ákveður styrkupphæð hverju sinni.
7. grein
Um styrkveitingar:
a) Veita má styrk úr sjóðnum vegna mjög góðrar frammistöðu í eftirtöldum alþjóðamótum:
i) Heimsmeistaramótum
ii) Evrópumeistaramótum
iii) Norðurlandameistaramótum
vi) Ólympíuleikum
b) Heimilt er að veita styrk úr sjóðnum ef viðkomandi hefur verið valinn í landslið.
c) Heimilt er að veita styrk úr sjóðnum ef viðkomandi er Íslandsmeistari eða hefur sett Íslandsmet á styrkári.
d) Ennfremur er heimilt að veita styrk til þeirra sem standa framarlega í sinni grein miðað við styrkleikaflokkun sérsambanda (sé hún til).
8. grein
Til að hljóta styrk geta íþróttamenn, aðrir en um getur í 7. grein, eða félög þeirra sótt skriflega um til sjóðsstjórnar. Allar umsóknir í Afreksmannasjoð skulu vera undirritaðar af umsækjendum og formanni viðkomandi aðildarfélags eða deildar og þeim skal fylgja ástæða umsóknar.
9. grein
Umsóknum frá einstaklingum eða hópu vegna sérstakra verkefna, skulu fylgja staðfesting á þátttöku og/eða kostnaði, s.s. afrit af reikningum eða staðfesting á þátttöku frá sérsambandi.
10. grein
Sjóðsstjórn skal gera grein fyrir styrkveitingum úr sjóðnum í ársskýrslu UMSE.
11. grein
Umsóknir um styrk úr sjóðnum skulu berast fyrir 1. desember ár hvert og fer úthlutun fram 15. desember sama ár.
Sjóðsstjórn er þó heimilt að taka ákvörðun um úthlutu og greiða fyrirfram úr sjóðnum, ef sérstakar aðstæður skapast, s.s. ef einstaklingur eða hópur fær boð um þátttöku í landsliðsverkefnum með skömmum fyrirvara. Formleg úthlutun fer fram samkvæmt ofangreindu.
12. grein
Um meðferð sjóðsins gilda sömu reglur og annarra sjóða UMSE.
13. grein
Breytingu á reglugerð þessari er einungis hægt að gera á ársingi UMSE að fengnu samþykki einfalds meirihluta atkvæða.
Samþykkt svohljóðandi á 96. Ársþingi í Árskógi 9. mars 2017