Aðalstjórn UMSE
Formaður
Sigurður Eiríksson
Heimilisfang:
Vallartröð 3
601 Akureyri,
Sími: 862 2181
Netfang:
Varaformaður
Þorgerður Guðmundsdóttir
Heimilsfang:
Ytra-Laugaland 2
601 Akureyri,
Sími: 660 2953
Netfang:
Ritari
Kristlaug Valdimarsdóttir
Heimilisfang:
Gilsbakka
601 Akureyri
Sími: 849 3924
Netfang: krissa1986@hotmail.com
Um stjórn UMSE
Í stjórn UMSE eru starfandi fimm einstaklingar, kjörnir til tveggja ára og í varastjórn UMSE eru 3 einstaklingar kjörnir til eins árs í senn. Í 11. grein laga UMSE segir um stjórn:
"Stjórn UMSE, sem kosin er á ársþingi til tveggja ára í senn skipa 5 menn: formaður, varaformaður, ritari, gjaldkeri og einn meðstjórnandi. Allir aðalstjórnarmenn eru kosnir til tveggja ára. Formaður, ritari og meðstjórnandi eitt árið og varaformaður og gjaldkeri árið eftir. Varastjórn er kosin á ársþingi til eins árs í senn og skal skipuð 3 mönnum. Stjórnin hefur á hendi stjórn sameiginlegra mála sambandsins milli þinga, innan þeirra marka sem lög og þingsamþykktir setja. Varamenn skulu boðaðir á stjórnarfundi. Einnig er stjórn sambandsins heimilt að bæta við áheyrnarfulltrúa frá þeim félögum sem eiga ekki mann í stjórn eða varastjórn UMSE.
Stjórnin hefur úrskurðarvald í öllum deilumálum sem upp koma á milli þinga en úrskurði hennar má skjóta til næsta þings til fullnaðarúrskurðar. Stjórnin gefur skýrslu um hag og starfsemi sambandsins til UMSÍ og ÍSÍ skv. lögum þeirra. Hún veitir móttöku öllu því fé sem sambandinu áskotnast, ávaxtar sjóði þess og fer með þá samkvæmt þeirra fjárhagsáætlun er þingið hefur samþykkt. Hún skal ábyrgjast sjóði sambandsins og í sameiningu hafa forsjá um aðrar eignir þess."